Lærum og nærum -
fræðsluvefur um næringu

Hafdís Helgadóttir ásamt Petru papriku og fleiri matvælavinum

Næringarfræðsla sem börn skilja

  • Námsefni
  • Veggspjöld
  • Barnabækur
  • Fræðsla frá Hafdísi

Lærum og nærum er fræðsluvefur í umsjá Hafdísar Helgadóttur ætlaður kennurum, foreldrum og forsjáraðilum barna og ungmenna. Hafdís Helgadóttir er næringarfræðingur, kennari og bókahöfundur.

Fyrsta bókin – Ævintýri Petru papriku

Ævintýri Petru papriku - bókarkápa

Ævintýri Petru papriku er saga fyrir börn þar sem næringarfræðsla er fléttuð inn á skemmtilegan hátt. Yngri börnin njóta lifandi mynda, eldri börn lesa sjálf og kafa dýpra. Aftast er fræðslukafli fyrir þann sem les með barninu og leiðarvísir í efni á netinu. Textinn hentar vel fyrir lesblinda.

Upplýsingar um bókina

  • Aldur: 2-10 ára
  • Þema: Næringarfræðsla fyrir börn
  • Letur: Lesblindu-vænt
  • Kennsluefni: á vefsíðu
Skoða bókina

Framhald – Petra paprika og innrásin

Petra paprika og innrásin er önnur bókin um ævintýraheim Petru papriku og litríku matvælanna. Ógn steðjar að Líkamanum og mikilvæg skilaboð frá Ónæmiskerfinu berast á Heilsustofnun Líkamans. Petra paprika og félagar þurfa að bregðast hratt við.

Upplýsingar um bókina

  • Aldur: 2-10 ára
  • Þema: Næringarfræðsla og ónæmiskerfið
  • Letur: Lesblindu-vænt
Petra paprika og innrásin - bókarkápa

Námsefni & verkefni

Skoðaðu og sæktu fræðsluefnið. Allt efnið er ókeypis og má nota í kennslu eða heima.

Ævintýri Petru papriku - Kennsluleiðbeiningar

Hugmyndabanki fyrir grunnskóla

Lesskilningsverkefni

Verkefni fyrir næringarfræðslu

Litabók

Borðum regnbogann

Regnbogasmakk verkefni

Fræðsla með regnbogasmakk verkefni

Veggspjöld

Næringarefni og fæðuflokkar

Spil

Smakkspil Petru papriku

Veldu möppu til að skoða skrár

Smelltu á einhverja möppu til vinstri til að sjá PDF skrárnar sem eru í henni.

Smelltu á einhverja möppu hérna fyrir ofan til að sjá PDF skrárnar sem eru í henni.

Um Hafdísi

Hafdís Helgadóttir - næringarfræðingur og kennari

Næringarfræðingur · kennari · rithöfundur

Ég heiti Hafdís Helgadóttir, næringarfræðingur, kennari og rithöfundur. Ég hef sérstakan áhuga á næringarfræðslu barna og því hvernig við getum miðlað upplýsingum um mat og næringu á einfaldan, jákvæðan og skemmtilegan hátt.

Ég er höfundur barnabókanna Ævintýri Petru papriku og Petra paprika og innrásin og kennsluefnisins Heil og sæl. Auk þess held ég fyrirlestra, veiti ráðgjöf og vinn að fjölbreyttum verkefnum tengdum næringu, fræðslu og heilsueflingu.

Á Instagram deili ég reglulega fróðleik og hagnýtum ráðum um næringu fyrir börn, unglinga og fullorðna.

Fræðslumolar frá Instagram

Fylgdu mér á @hafdisnaering fyrir daglegar ráðleggingar, fræðslumola og næringarupplýsingar fyrir börn, unglinga og fullorðna. Hér má sjá dæmi af efni sem ég deili reglulega.

Góð ráð fyrir börn

Fyrir börn

  • Vertu góð fyrirmynd við borð.
  • Leyfðu barninu að taka þátt í eldhúsinu.
  • Foreldri ákveður hvað/hvenær/hvar, barnið hvort og hversu mikið.
  • Kynntu nýjan mat rólega og ítrekað.
  • Vatn með og milli máltíða.
Góð ráð fyrir unglinga

Fyrir unglinga

  • Skipuleggðu daginn (æfingar, skóli, hádegisval).
  • Drekktu vatn; forðastu íþróttadrykki nema við langar æfingar.
  • Borðaðu reglulega morgunmat.
  • Hugsaðu kolvetni + prótein + fita yfir daginn.
  • Hlusta á hungur/seddu og borða í núvitund.
Góð ráð fyrir fullorðna

Fyrir fullorðna

  • Vikuskipulag máltíða og innkaup.
  • Lesa innihaldslýsingar og velja minna unnið.
  • Bæta næringarríku inn frekar en að taka út.
  • Núvitund við borð; njóta matarins.

Nýjasta efnið á Instagram

Spurt & svarað

Bækurnar henta börnum á aldrinum 2-10 ára. Yngri börnin njóta mynda og einfaldra texta, á meðan eldri börn geta lesið sjálf og kafað dýpra í efnið.

Nei, bækurnar standa vel hvor fyrir sig. Það getur þó verið gaman að byrja á Ævintýri Petru papriku til að kynnast persónunum og ævintýraheiminum og fá góðan grunn að fræðslunni sem heldur áfram í seinni bókinni.

Bækurnar fást í Eymundsson og Bókabúð Forlagsins. Einnig er hægt að kaupa þær beint af mér með því að hafa samband í gegnum síðuna.

Já! Nánast allt námsefnið á síðunni er hægt að nota óháð bókunum. Fyrir þau sem eiga Ævintýri Petru papriku eru einnig sérstakar kennsluleiðbeiningar sem vinna með söguna og fræðsluna í bókinni.

Já. Námsefnið er ætlað til notkunar í fræðslu og kennslu og kennurum er velkomið að nýta það með nemendum sínum.

Já. Ég býð upp á fyrirlestra og fræðslu um næringu fyrir ólíka hópa. Hægt er að senda fyrirspurn í gegnum síðuna eða hafa samband við mig með tölvupósti til að fá nánari upplýsingar.

Hafa samband

Ertu með spurningar um næringu, vilt bóka fyrirlestur eða kaupa bókina? Ég hlakka til að heyra frá þér!

Vinsamlegast sláið inn nafn
Vinsamlegast sláið inn gilt netfang
Vinsamlegast skrifið skilaboð